Assets

Assets kerfi Veva heldur utan um öll skjöl sem vistuð eru í kerfinu

Til að komast í Assets hlutann er smellt á Veva lógóið uppi vinstra megin og Assets valið í valmynd.

Hægt er að búa til nýjar möppur auðveldlega sem og undirmöppur. Hægt er að stýra hverri möppu niður á notendahópa ef þörf er á að aðgangstýra aðgangi, hvort sem það er af framenda eða úr bakenda.

Með því að smella á skjal er hægt að velja edit og breyta nafni, skjala nafni, bæta við lýsingu og tag sem og skipta út efni. "Replace asset" tryggir að allar vísanir sem þegar eru í þetta skjal halda sér en efnið mun sýna nýja skjalið. Eins er hægt að velja focus punkt fyrir myndir sem stjórnar því hvernig myndin skalast niður.

Metadata færist sjálfkrafa inn eftir því sem þegar er á skjalinu. Þegar efni er síðan valið inn í efni í documents eða page hluta kerfisins er hægt að bæta við t.d. myndatexta (caption) og eins tengja við t.d. nafn ljósmyndara. Hægt er að tengja alt texta við nafn skjalsins eða sérskrifa alt þar sem efnið er birt.