Documents - hönnun og uppsetning

Hönnun og uppsetning á greinum, fréttum, formum og öðru sem á að halda utan um í Documents kerfi VEVA.

Til að efni birtist síðan á framenda þarf að tengja document uppsetninguna við framenda einingar. Það veltur á því hvernig uppsetningu á Veva þú ert með hvort þú getir útfært það á eigin spýtur eða hvort þú þurfi aðkomu forritara. En hver og ein mappa eða model getur haft sérstaka birtingarmynd.

Þegar smellt er á module eða folder í documents hluta VEVA er hægt að velja "Design" en þar eru efnisreitir skilgreindir, framsetning sem að síða á að geta unnið með og ef að um er að ræða form eða álíka, hvort það eigi að senda það eitthvert eða tengja það við kerfi.

Eins er hægt að skilgreina tengd gögn þar sem notendur geta sótt annað efni til að birta með efninu í framenda.

Design: Hér er valið hvaða reitir eiga að vera fastir í skjalinu sem verið er að búa til. Hér skal ímynda sér alla mögulega efnisnotkun (ekki þarf að nota alla möguleika í hvert sinn sem nýtt skjal er búið til).

Sem dæmi; Þú ætlar að birta fréttir á síðunni þinni. Fréttir þurfa að innihalda fjölbreytt efni og því velur þú að birta fyrirsagnir, texta, myndir, texta með myndum til hliðar, töflugögn, hlekki á annað efni og youtube/vimeo embed einingu.

Tengja saman documents efni:

Auðvelt er að velja inline documents hér og leyfa birtingu annarra document eininga innan þessara. Þetta er mjög gagnlegt fyrir tengt efni svo ekki þurfi að viðhalda sama efninu á mörgum stöðum.

Settings: Hér er valið hvaða reitur á að vera fyrirsögn (nafn síðu) í framenda, hvort það eigi að nota dagsetningar eða dagsetningar takmarkanir og fleira sniðugt. Hér er einnig valin hvaða síða er með útlits sniðmát fyrir þetta skjal svo hægt sé að skoða "preview" af skjalinu.

Handlers: Ef þetta er t.d form eða eyðublað, velur þú hér að bæta við "email handler" sem sendir t.d þeim sem fyllir formið út afrit, og sendir útfyllt form á starfsmann til að hafa samband við viðkomandi. Hér einnig hægt að virkja "Change log" sem skráir hjá sér í hvert sinn sem einhver breytir einhverjum stillingum á þessu skjali.

Views

Hér er hægt að stilla endapunkta til að sækja efni í gegnum t.d. API köll eða RSS veitur.

Authorization

Hér er hægt að stilla af hvaða notenda hópar hafa aðgang að þessu modeli og/eða möppum